Skíðaunnendur til sjávar og sveita ættu að kannast við franska Alpahéraðið Savoie þar sem finna má mörg af stórkostlegustu skíðasvæðum Evrópu. Færri vita að þar má líka berja augum einhver merkilegustu snjólistaverk sem hægt er að skapa.
Eins og oftast er raunin þarf merkilegt fólk til að gera merkilega hluti.
Simon Beck er merkilegur þó ekki fyrir aðrar sakir en njóta þess út í ystu æsar að troða snjó þegar vel viðrar á fjallasvæðum Alpanna. En Beck þessi treður ekki eitthvað út í buskann. Hreint ekki. Hann býr til listaverk eftir listaverk í snjónum og lætur það ekkert á sig fá þó flókin og tímafrek verk hans hverfi eins og dögg fyrir sólu um leið og byrjar að snjóa að nýju. Hann bara byrjar þá á nýju verki um leið og veðrinu slotar.
Verk hans eru svo mögnuð að hann fær nú nógu marga styrki frá fyrirtækjum á borð við Evian að hann þénar laun fyrir troðninginn. Geri aðrir betur.








