Okkur hjá Fararheill grunar að við séum ekki ein um að finnast janúarmánuður mega missa sín í heilu lagi og veðurfarið þann mánuðinn með. Nú er lag að gera eitthvað í því og drífa sig til Oslóar á tilboðsverði.

Til Osló á tilboði og þaðan á lágu verði víða um heim í janúar.

Til Osló á tilboði og þaðan á lágu verði víða um heim í janúar.

Það er reyndar ekki svo að höfuðborgin norska bjóði upp á neitt meira spennandi veðurfarslega en eldgamla Ísafold í janúar. Eiginlega þvert á móti því meiri raki er oft meiri þar en hér og frost því oft grimmara á föla húð.

En þangað er samt hægt að komast á tilboðsverði með SAS fram og aftur allan janúar fyrir 29.700 krónur ef bókað er um helgina á vef flugfélagsins. Það er reyndar ekki mikið lægra verð en fæst almennt hjá Norwegian þessa sömu leið en hér skal muna að með SAS máttu taka 23 kíló af farangri með án aukagjalds.

En hugmyndin var ekki að setjast að í Osló mikið heldur halda áfram förinni þaðan. Til dæmis með Norwegian sem einmitt líka er með sérstök tilboðsverð í boði. Þar má til dæmis finna í janúar flug aðra leið til Antalya í Tyrklandi fyrir 5.995 krónur, til Bangkok aðra leið fyrir tæpar 45 þúsund eða Fort Lauderdale í Bandaríkjunum fyrir rúman 30 þúsund kall svo nokkur dæmi séu nefnd.