Rennur nokkuð kalt vatn milli skins og hörunds þegar þú hugsar um mánuðina janúar, febrúar eða mars? Þá er nýtt tilboð bresku ferðaskrifstofunnar Best@Travel kannski fyrir þig. Sjö nátta dvöl í Orlando í Flórída á feykigóðu íbúðarhóteli þessa mánuði fyrir 120 þúsund á mann.

Vista Cay íbúðahótelið í Orlando er sagt fimm stjörnu á vefmiðlum.

Vista Cay íbúðahótelið í Orlando er sagt fimm stjörnu á vefmiðlum.

Jú, vissulega krefst þetta þess að þú kaupir líka flug til London og hjem aftur og það kostar en sé mið tekið af því að fargjald beint héðan til Orlando með Icelandair kostar frá 80 þúsundum að lágmarki á mann fram og aftur og oftast nær gott betur en það gæti það bara vel  verið þess virði að taka þennan aukarúnt. Sérstaklega kannski ef einhver sértilboð fást til London.

Tilboð Best@Travel gildir um sjö nætur á íbúðahótelinu Millennium Vista Cay sem seint fer í slorflokk þar ytra. Þetta er í boði alla þrjá mánuðina sem um ræðir og reyndar lengur en þá hækkar verðið lítið eitt.

Nánar um tilboðið hér.