Það er alveg endalaust makalaust að okkar viti hér hjá Fararheill að innlendar ferðaskrifstofur bjóði upp á örstuttar þriggja daga helgarferðir á verði sem skjagar langleiðina upp í margra vikna Tælandsferð.

Helgarferð til Möltu fyrir tvo á hundrað þúsund krónur í boði.

Helgarferð til Möltu fyrir tvo á hundrað þúsund krónur í boði.

Yfirlega yfir þær „borgarferðir“ sem í boði eru þessa stundina hjá þeim stóru innlendu leiðir í ljós að enginn er að fara langt með þeim undir hundrað þúsund krónum á mann.

Dæmi um það er þriggja daga Berlínarferð Úrval Útsýn nú seinni hluta nóvember sem rokselst en kostar þó 79 þúsund krónur á haus eða tæp 160 þúsund fyrir tvo. Hver dagur í Berlín kostar parið því rúmar 53 þúsund krónur.

Berlín er stórkostleg heimsóknar og við gerum ekki lítið úr heimsókn þangað en hvað ef við gætum bent á ferð á aðeins meira framandi og heitari slóðir í byrjun desember í þrjá daga sem kostar ekki mikið meira fyrir tvo en farið til Berlínar kostar einn einstakling með Úrval Útsýn.

Það gerum við með því að heimsækja bresku ferðaskrifstofuna Choice Holidays, bóka þar þriggja nátta pakka frá Gatwick til Möltu sem kostar par samtals 45 þúsund krónur á þriggja stjörnu hóteli með morgunverði. Svo drífum við okkur að panta flug með  Wow Air til Gatwick og heim aftur en lægsta verð á flugi þessa stundina er 12.900 aðra leið plús tösku- og bókunargjald. Enginn þarf tösku í svo skamma ferð og því kemst par til og frá London vel undir 60 þúsund krónum. Þó vesenið sé meira kostar dagur á Möltu með þessum hætti aðeins 35 þúsund krónur á dag. Og enginn þarf að rífast um að verðlag á Möltu er síst verra en í Berlín.

Ergo; hjón eða par spígspora fáklædd um hafnarbakkann í Valletta á Möltu fyrir samtals 105 þúsund krónur þrjá daga meðan Berlínarfarar Úrval Útsýn ganga lopaklæddir um stræti fyrir 160 þúsund krónur.

Og þetta er bara eitt einasta dæmi.

* Verð breytast ört hjá flugfélögum.