Öll þurfum við að komast frá dagsins amstri reglulega og fáar leiðir betri til þess en ferðalög hvers konar á aðrar slóðir.  Sumum duga skammar helgarferðir meðan aðrir þurfa mánuði á Kanarí hið minnsta. En hvernig væri að ferðast um og njóta í heilt ár og fá tíu milljónir króna fyrir?

Sigurvegari í nýrri samkeppni vinnur sér inn tíu milljónir króna í ferðapeninga.

Sigurvegari í nýrri samkeppni vinnur sér inn tíu milljónir króna í ferðapeninga.

Slíkt er í boði í samkeppni sem ferðavefurinn Lastminute.com stendur nú fyrir en sá sem fyrir valinu verður fær tæpar tíu milljónir króna og má ferðast hvert sem er fyrir þá upphæð í tólf mánuði. Þó sá hængur á að Lastminute hefur mest að segja um hvert viðkomandi fer hverju sinni.

Skilyrðin eru þau ein að viðkomandi bloggi reglulega um ævintýri sín en gert er ráð fyrir að um ævintýrasækna manneskju sé að ræða sem ekki hangir á sama staðnum lon og don.

Senda þarf inn kynningarmyndband á vef Lastminute fyrir 1. desember til að komast í pottinn.