Vart hefur farið hjá lesendum Fararheill að undanförnu að þrátt fyrir loforð og digurbarkalegar yfirlýsingar Wow Air er fyrirtækið bara ekki að bjóða allra bestu kjör á ferðum til Alicante á næsta ári. En nú sjáum við ekki betur en menn þar á bæ ætli að hysja upp um sig brækur.
Sannleikurinn er að minnst þrívegis á undanförnum vikum höfum við fjallað um aðila sem eru að bjóða betri verð til Alicante á Spáni á næsta ári. Síðast í gær kynntu Heimsferðir Alicante ferðir frá 23.900 krónum og flug aðra leið þangað fæst enn á 25.900 næsta sumar. Þar er 20 kílóa taska innifalin sem og öll gjöld ólíkt því sem uppgefið verð hjá Wow nær yfir.
Rúm vika er síðan við sýndum fram á að ódýrara væri að fara með easyJet til Bristol og þaðan áfram til Alicante næsta sumar og samt koma út í plús í samanburði við Wow Air.
Nú kunna Wow-menn að benda á að þeir séu nú að bjóða best þegar ferðast er með ekkert. En við skulum ekki blekkja fólk. Það sleppur mætavel að fara stutta helgarferð til London með ekkert nema nærur í handtösku en Fararheill fullyrðir að enginn heilvita maður ferðast til Alicante í sumarfrí með alls ekki neitt. Fráleitt alveg að halda slíku fram.
En miðað við þetta svar á fésbókarvef Wow um liðna helgi mega Íslendingar kannski eiga von á að verð lækki frá því sem nú er. Það er því ráð að hinkra kannski. Bara fúlt að kaupa flug og finna svo enn ódýrara flug viku síðar en ekki er endurgreiðsla í boði.









