Mikil ósköp eiga menn hjá Morgunblaðinu mikið eftir ólært og eru fjarri því að komast að „kjarna málsins“ eins og blaðið stærði sig af lengi vel.
Í dag birtist á vef þeirra frétt um að þýska flugfélagið Lufthansa ætli að hætta flugi til Íslands. Þar vísað í frétt á vef túrista. Inngangur fréttarinnar er: „Stærsta flugfélag Þýskalands og eitt það stærsta í heimi hættir að fljúga hingað til lands. Dótturfélag fyrirtækisins tekur við keflinu.“
Dööhh!
Dótturfélag er engu að síður hluti af sömu samsteypu ekki rétt. Þarna er því aðeins verið að færa verkefni milli félaga innan sama fyrirtækis. Fjarri því verið að HÆTTA flugi til Íslands eins og gefið er í skyn.
En aðalatriðið hvað okkur neytendur og þegna í landinu kemur hvergi fram!
Lufthansa ætlar að láta lággjaldaflugfélag sitt German Wings taka yfir leiðir þess til og frá Íslandi. Það eru frábærar fréttir því það þýðir einfaldlega að nú komust við á mun betra verði til og frá fimm stöðum í Þýskalandi. Ritstjórn Fararheill gæti alveg hugsað sér að opna eins og eina kampavín og jafnvel blása nokkrar blöðrur af þessu tilefni.








