Alls óhætt er að lofa frammistöðu strákanna í karlalandsliðinu fyrir þann árangur að komast í umspil um sæti á heimsmeistarakeppninni í Brasilíu. Frábær árangur og kannski sýnir svo ekki verði um villst hvað hægt er að gera þegar allir leggjast á eitt.
Nú eru framundan tveir leikir við sterkt landslið um þetta eftirsótta pláss í Brasilíu og aldrei skal segja aldrei. Ennþá er allt hægt.
Ein sú borg sem Fararheill hefur fjallað nokkuð um en komst aðeins nýlega í fréttir er brasilíska borgin Curitiba sem nýlega gerði vinaborgarsamning við Akureyri. Það er vel enda eiga Íslendingar allnokkra fulltrúa í Curitiba því það var helsti áfangastaður hóps fólks sem utan hélt hér fyrr á öldum og tók sólskinið í Brasilíu fram yfir fen og flugnamergð í Manitóba í Kanada.
Fjórir leikir í heimsmeistarakeppninni á næsta ári munu fara fram í Curitiba. Hversu stórkostlegt væri ef landsliðið okkar kemst alla leið og spilar kannski leik eða tvo þar.
Sakar ekki að láta sig dreyma eða hvað.








