Við hjá Fararheill höfum á tilfinningunni að fleiri en við dettum í nett þunglyndi hvert sinn sem janúarmánuð ber á góma. Kaldur og dimmur, orkan búin eftir jólin og áramótin og óvenju feitur kreditkortareikningur á leiðinni.

Ýmsar frábærar leiðir til að stytta janúar án þess að veðsetja húsið

Ýmsar frábærar leiðir til að stytta janúar án þess að veðsetja húsið

Sé fólk sama sinnis er til ótrúlega margt vitlausara en skella sér bara í óvenjulega siglingu um Miðjarðarhafið fyrir lágmarksverð í viku eða lengur og koma skoppandi af hamingju til baka. Janúar er nefninlega allra besti mánuður til að finna allra ódýrustu fargjöld með lúxusskipum í Evrópu.

Jú, víst er lítið hægt að berrassast á þilfarinu í janúar en það er einfaldlega samt mikið hlýrra og bjartara en heima á Fróni, skipið fyrirtak, stopp á æði mörgum ansi yndislegum stöðum fyrir utan tvær nætur í hinni yndislegu Barcelóna.

En bíddu, hvað dytti þér í hug að sex daga sigling á lúxusfleyi auk tveggja nátta í Barcelóna auk flugs til og frá Englandi gæti nú kostað? Varla undir 200 þúsund krónum á mann sé mið tekið af verðlagi innlendra ferðaskrifstofa.

En það er fjarri lagi gott fólk. Ferðaskrifstofan breska Cruise Nation er þessa stundina að bjóða ýmsa svona pakka með mismunandi löngum siglingum og dvöl í Barcelóna. Sex nátta sigling þann 20. janúar auk gistingar tvær nætur í Barca auk flugsins frá og til Bretlands kostar þessa stundina 64.100 krónur rúmar miðað við miðgengi dagsins. Plús kostnaður við flug til og frá London en tímaramminn er nægur til að finna ferðir á bærilegu verði.

Drífðu þig. Þú átt það bara víst skilið.