Þó ritstjórn Fararheill sé lítt hrifin af því að heimsækja fjarlæg lönd án þess að eyða þar stund og helst í félagsskap við heimafólk gefur maður afslátt á því þegar inn detta tilboð eins og það sem breska ferðaskrifstofan Ultra Travel býður nú.
Þar er um sjö nátta lúxussiglingu að ræða um Kúbu og Jamaíka, hvoru tveggja frábær lönd til heimsóknar, um borð í vinsælu fleyi og stoppað á fjölmörgum ansi freistandi stöðum. Nægir þar væntanlega að nefna Havana, Montego Bay, Holguin, Trinidad og Cienfuegos svo eitthvað sé nefnt. Vandfundnar aðrar siglingar þar sem hægt er að heimsækja sex staði á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna á sjö daga ferðalagi.
En þótt siglingin sé sjö nátta er ferðin sjálf tíu dagar og fær fólk því nokkra sólarhringa í þeirri unaðsparadís sem Havana, höfuðborg Kúbu, er fyrir alla sem hafa neista í skrokki.
Ultra er að bjóða þessa ferð sína frá og með desember næstkomandi og fram í mars 2014 og innifalið er flug með hinu afar fína Virgin flugfélagi til og frá London. Verðið er aldeilis frábært eða 253 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman í innri klefa. 50 þúsund kall í viðbót gæti tryggt klefa með svölum ef því er að skipta.
Ferðaskrifstofan er kunn að góðu og hefur allar þær tryggingar sem traustar ferðaskrifstofur eiga að hafa. Þó verður að hafa samband, símleiðis eða með tölvupósti, til að tryggja sér farmiða í þessa dúlluferð.








