Hættið að stela björgunarbúnaði úr farþegaþotum, ekki ganga örna ykkar í næsta drullupolli og það er ekki til siðs að bora í nefið sýknt og heilagt.

Kínverskir túristar komast æði oft í fréttir fyrir fáránlegar uppákomur sínar og nú hafa stjórnvöld gripið í tauma
Hætt er við að hver sá sem legði Kínverjum slíkar ferðareglur yrði álitinn argasti rasisti en í þessu tilfelli er um að ræða tilmæli frá stjórnvöldum í landinu til eigin ferðafólks. Kínversk stjórnvöld hafa raunverulega gefið út 67 síðna handbók til handa öllum þeim er ferðast ætla erlendis og meðal ráða eru ofantalin þrjú tilmælin.
Sprenging hefur orðið í fjölda Kínverja sem ferðast erlendis á síðustu árum með vaxandi velmegun innanlands og þó flestir eigi peninga eru þeir líka oft vanir öðrum hlutum heimavið en tíðkast í París, London, New York eða Genf.
Töluvert hefur verið um fregnir af undarlegu háttalagi Kínverja um nótt og daga líka. Allt frá því að krota með tússi á ómetanlegar fornminjar í Egyptalandi og veiða og borða dýr í útrýmingarhættu til þess að stelast til að stunda laxveiði í fokdýrum íslenskum ám án þess að láta kóng né prest vita. Þá er ekki langt síðan uppþot varð í Hong Kong þegar kínverskri konu fannst sjálfsagt mál að láta son sinn pissa í flösku á virtum veitingastað.







