Gleðifréttir fyrir öll okkar sem vorum búin að gefa Orlando ferðina upp á bátinn vegna óheyrilegrar álagningar Icelandair. Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian til bjargar.
Norðmennirnir eru að taka heiminn með stormi og í dag kynnti fyrirtækið þrjá nýja áfangastaði sína í Bandaríkjunum í beinu flugi frá Osló. Los Angeles, San Francisco og ORLANDO. Og ekki nóg með að nú sé hægt að komast með örlitlum krókaleiðum til Orlando án þess að veðsetja heimilið heldur er Norwegian að bjóða allmiklu betur en Icelandair á sínum bestu fargjöldum þó flugleiðin frá Osló sé töluvert lengri en frá Keflavík.
Til allra þriggja áfangastaðanna verður frá og með næsta sumri komist ódýrast fyrir 1499 krónur norskar eða rétt rúmar 29 þúsund íslenskar krónur miðað við miðgengi dagsins. Báðar leiðir þannig fyrir 60 þúsund plús fimm til tíu þúsund fyrir farangur.
Það er öllu vænlegra verð en Icelandair býður. Lægstu fargjöld þeirra þennan vetur svo dæmi sé tekið er um og yfir hundrað þúsund krónur á mann en dýrari fargjöldin um jól eða páska töluvert hærri en það.
Nú er bara að bóka hið fyrsta og svo slaka þangað til tilboð til Oslóar detta í hús og voilá!








