Einn hluti ritstjórnar Fararheill hugsaði sér gott til glóðar og kveikti meira að segja í kúbönskum vindli þegar flett var nýjum haust- og vetrarbæklingi Heimsferða. Sá reyndar er, eins og við höfum áður fjallað um, keimlíkur sama bæklingi síðustu árin nema verð breytast.
Eitt var þó þar æði frábært undir fyrirsögninni „Borgarveisla í haust, vetur og vor“ en þar auglýsir ferðaskrifstofan flug aðra leið til Billund eða Kaupmannahafnar frá 9.900 krónum. Við kvörtum seint yfir slíku tilboði heldur fögnum mjög og það kórónar gott tilboð að bjóða það í allan vetur og fram á vor sem samkvæmt dagatalinu er til 24. apríl.
En fljótt drapst í vindlinum þegar farið var á stúfana á vef Heimsferða til að velja nú einhverja fína dagsetningu. Þar sem aðeins er um flug að ræða er það vitaskuld valið í bókunarflipanum og valið annaðhvort Köben eða Billund. Alles gut so far. Fargjöld eru í boði á 9.900 krónur til beggja áfangastaða en þó ekki í vetur og vor. Eingöngu er boðið upp á flug fram í lok október til Kaupmannahafnar og aðeins fram til 21. október til Billund.
Nú eru nokkrir sólarhringar síðan bæklingurinn kom inn um lúguna og það því ekki afsökun fyrir starfsfólk Heimsferða að tími hafi verið of knappur til að setja inn ferðir á þessu verði í VETUR og VOR. Sem er eiginlega það eina sem okkur dettur í hug nema fyrirtækið hafi þarna gert mistök eða sé að stunda vörusvik. Jafnvel þó um mistök sé að ræða eiga viðskiptavinir skýran rétt á að fá flug á uppgefnu verði í vetur og vor. Á því leikur enginn vafi.
PS: svo væri óskandi að ferðaskrifstofan skapaði eins og eitt starf til að uppfæra vef sinn og fésbók. Hvorugt hefur tekið neinum breytingum í langan tíma og þar til dæmis hvergi að finna hinn nýútgefna haust- og vetrarbækling. Slíkt flokkast ekki alveg undir merkilega þjónustu.








