Deila má lengi um heilaga biblíu kristinna manna en eitt er þó að minnsta kosti rétt í þeirri bók; Leitið og þér munuð finna.
Það er sem höfundar hafi séð fyrir þann frumskóg af ferðatilboðum sem í boði eru á heimsvísu á netinu dags daglega en tilboðin eru fleiri en komist er yfir með góðu móti. Sem er synd því mörg þeirra spara fólki duglegar upphæðir.
Þannig er til dæmis um tilboð á ferðabókunarvélinni Ebookers þessa dagana en fram til sunnudagsins 8.september er þar í boði helmings afsláttur á hótelgistingu á útvöldum stöðum í hinum ýmsu borgum heims og út allan mánuðinn takmarkaður fjöldi hótela á miklum afslætti.
Það eru kostakjör meðan krónunni okkar er haldið sofandi á gjörgæslu og nánast allt erlendis orðið dýrt eða allt of dýrt. Fararheill hefur notað Ebookers með ágætum árangri gegnum árin. Tilboðssíðan hér.








