Við höfum fengið ótrúleg viðbrögð við greininni um hana Lísu okkar sem fer ótroðnar slóðir til Spánar um jólin og dvelur þar í mánuð í ágætu yfirlæti skammt frá Malaga með fjölskyldunni og það fyrir aðeins 200 þúsund krónur.

Sagan hermir að hamra beri járnið meðan það er heitt og þess vegna er óvitlaust að segja ykkur frá för annars meðlims Fararheils sem einnig verður víðsfjarri Íslandi yfir jólahátíðina.

Þórður ætlar að eyða dögum erlendis frá 15. desember til 8. janúar og þrettán af þeim á Kúbu. Kúbuferðir í sjálfu sér engin nýjung þó lítið hafi framboð verið af ferðum héðan undanfarið. Það sem gerir ferð Þórðar örlítið sérstakari en ella er að hann ætlar að keyra um alla eyna og heimsækir eina átta skemmtilega staði auk þess sem tími gefst í Havana, Santiago de Cuba og í Holguín.

Um áraraðir hefur það verið miklum annmörkum háð að þvælast um á eigin vegum og sérstaklega erfitt hefur verið að fá bílaleigubíla en þetta er aðeins að breytast til batnaðar og gegnum ferðaskrifstofuna Yaneeda fann Þórður safaríkt tilboð með bíl og gistingu og morgunverði alla þrettán dagana fyrir aðeins 98 þúsund krónur. Sem er snilldarverð en hafa skal í huga að um það bil helmingur gistináttanna er í heimahúsum, svokölluðum casas particulares, sem Þórði finnst reyndar snöggtum skemmtilegra en hótel. Ferðin tekur hann frá Havana til Viñales og niðureftir allri suðurströnd eyjunnar til Santiago áður en ferðinni lýkur í Holguín fylkinu þar sem sól verður sleikt áður en haldið verður heim.

Tilboð Yaneeda er bráðgott

Tilboð Yaneeda er bráðgott

Flogið er frá London með Virgin Atlantic og prísinn fyrir flug fram og aftur til Havana í desember og janúar er 172 þúsund krónur á kjaft en Þórður reyndar ferðast með fleirum. Hann á töluvert af vildarpunktum með Icelandair og hyggst grípa gæs næst þegar flugfélagið lækkar verð sín til London. Þangað kemst hann í öllu falli fyrir 40 til 50 þúsund krónur á þessum tíma jafnvel þó ekki poppi upp sérstakt tilboð.

Með Virgin kostar flug fram og aftur rúmar 170 þúsund krónur frá Englandi.

Með Virgin kostar flug fram og aftur rúmar 170 þúsund krónur frá Englandi.

Samanlagt kostar þessi ákveðni túr því 315 þúsund krónur á mann og því ekki alveg gefins. En í staðinn flakkar hann um dásemdareyjuna Kúbu í 30 gráðu hita, kynnist fólkinu í landinu og rekst eflaust á eitthvað merkilegt við hvert skref meðan élin lemja glugga heimavið á Íslandi.

Freistandi ekki satt?


View Kúbuferðin in a larger map