Við hjá Fararheill höfum áður fjallað um það sem við köllum outlet-ferðaþjónustuaðila sem mökkur er af vestur í Bandaríkjunum og hafa það eitt á stefnuskránni að finna ferðir sem illa hafa selst og bjóða á miklum afsláttarkjörum þegar skammt er til brottfarar.

Góð vísa er aldrei of oft kveðin, nema hún sé eftir Gylfa Ægisson, og nú þegar marga klæjar í puttana að fara þessar safaríku skemmtisiglingar sem alltaf eru vinsælar á haustin er ráð að minna aftur á þessa þjónustu. Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti er hægt að negla vægast sagt vænlegan afslátt frá upprunalegu listaverði hjá siglingafyrirtækjunum.

Taka skal þessu með örlitlu af salti enda ýkja þessir outlet-aðilar oft aðeins og stundum eru þeir að bjóða sömu afslætti og skipafélögin sjálf. Engu að síður þrífast slíkir aðilar ár eftir ár vegna þess að hér finnur fólk draumasiglinguna á lægra verði en annars er í boði.

Reynið Vacations To Go til að leita að lægstu kjörum á siglingum á næstu vikum og mánuðum og þegar ferðin er fundin skal endilega bera saman verð við uppgefið verð hjá skipafélaginu sjálfu ef ske kynni að það byði betur. Sem oftast er ekki raunin.

* Tekið skal fram að Fararheill er einungis að benda á þennan kost fyrir áhugasama af fúsum og frjálsum vilja og ber ekki ábyrgð á neinu því sem þar er boðið. Aðeins er um siglingar að ræða og því þarf fólk að koma sér sjálft á staðinn í öllum tilfellum.

Nokkur dæmi um afslætti á næstu dögum og vikum hjá Vacations To Go. Sums staðar nemur afslátturinn 80 prósent frá uppraunalegu verði.

Nokkur dæmi um afslætti á næstu dögum og vikum hjá Vacations To Go. Sums staðar nemur afslátturinn 80 prósent frá uppraunalegu verði.