Vildum ekki vera dónaleg og það skýrir fyrirsögnina. Erindið var hins vegar að út er komin öllu áreiðanlegri úttekt á töfum flugfélaga en hinn sænsk-íslenski vefur túristi býður upp á og oft er í vitnað í hérlendis. Í þeirri úttekt fær Icelandair aldeilis á baukinn en samanborið við 50 flugfélög Evrópu situr þetta íslenska flugfélag í fjórða neðsta sætinu fyrir júnímánuð.

Það verður að segjast eins og er að fjórða neðsta sætið meðal 50 evrópskra flugfélaga þegar heimaflugvöllurinn er laus við mikla traffík allan ársins hring er afskaplega léleg frammistaða hjá Icelandair. Aðeins British Airways, Air Nostrum og hið portúgalska TAP eru meira á eftir áætlun en Icelandair en jafnvel það eru litlar sárabætur því BA og TAP fljúga bæði frá flugvöllum sem löngu eru sprungnir í tætlur. Sérstaklega hlýtur að vera erfitt að vera stjórnandi British Airways en aðalflugvöllur þeirra er Heathrow-völlur þar sem alvarlegar tafir eru algengari en vatn er í sjó. Sömuleiðis er traffík í Lissabon allverulega meiri en gerist og gengur í Leifsstöð.

Fræðingum Flightstats telst til að aðeins 68.02 prósent ferða Icelandair hafi farið af stað og lent á áætluðum tíma í júnímánuði en til samanburðar, eins og sjá má á töflu hér að neðan, eru mörg önnur stærri flugfélög að standa sig töluvert betur en hið íslenska flugfélag.

Því miður er Wow Air ekki tekið með í reikninginn enda ekki flugfélag.

 

Ekki spennandi lesning fyrir forstjóra Icelandair

Ekki spennandi lesning fyrir forstjóra Icelandair