Flugið til Egilsstaða var tíðindalaust að mestu en athygli vakti að í vélinni á góðum tíma á sunnudegi yfir hásumarið voru 26 laus sæti. Leiðin til Reykjavíkur snemma morguns í miðri viku sömuleiðis tíðindalítil en aftur vakti fámenni um borð athygli. 28 sæti laus þar og einungis einn erlendur ferðamaður með í för. Mánuði fyrr, í júní, voru 20 sæti tóm um miðjan dag á fimmtudegi á leið til Akureyrar. Vélin til baka líka létt því engir sátu í 14 sætum fimm dögum síðar.

Verðhækkanir í flugi innanlands hafa verið miklar undanfarið og margar vélar heldur tómlegar. Mynd Aero Icarus

Verðhækkanir í flugi innanlands hafa verið miklar undanfarið og margar vélar heldur tómlegar. Mynd Aero Icarus

Ritstjórn Fararheill er alla jafna ekki mikið á ferðinni innanlands enda búið að þvælast þar víðast hvar um og útlöndin heilla meira. Örlögin höguðu því þó þannig að tveir úr ritstjórn hafa flogið síðasta mánuðinn eða svo með Flugfélagi Íslands og báðir undrast stórum að í öll fjögur skiptin á háannatíma hafa vélarnar verið jafn tómlegar eins og toppstykkið á sumum innlendum pólitíkusum.

Tómlegar er þó fulllítið sagt því ætti einokunaraðili á flugmarkaði innanlands einhvern tíma að troðfylla vélar sínar og það án þess að blikka auga hlýtur það að vera í júní og júlí til Akureyrar og Egilsstaða sem eru vinsælustu áfangastaðirnir innanlands.

Líkurnar á að einmitt þessar fjórar flugferðir hafi verið undantekning frá annars troðfullum vélum eru einhverjar en litlar. Enn verra mál að þó sætaúrval hafi verið meira en í húsgagnahöllinni fyrir jólin fór víðsfjarri að fargjöldin hefðu fengist á eðlilegu verði. Ódýrasta fargjaldið í boði til Reykjavíkur frá Egilsstöðum þremur dögum fyrir brottför kostaði tæpar sautján þúsund krónur aðra leiðina. Í tómri vél!!!

Nákvæmlega ekkert eðlilegt við það. Gott og blessað að taka feitt gjald þegar eftirspurn er meiri en framboð en þarna virðist það engu skipta enda framboð margfalt umfram eftispurn í þessum fjórum dæmum. Svo ekki sé minnst á eldsneytiskostnað sem hlýtur að vera helmingi lægri í hálfri vél en fullri. En enginn fær að njóta þess. Flugfélagið ætti að taka upp nýtt mottó: spörum og græðum.