Seinnihluta júlímánaðar 2007 reis íslenska krónan þvílíkt upp á afturlappirnar að aumingja dollar þeirra Bandaríkjamanna hrökklaðist hríðskjálfandi niður í rúmar 58 krónur. Þeir sniðugu hófu strax að kaupa dollara í tonnavís og koma fyrir undir kodda meðan aðeins öðruvísi fólk á borð við einn meðlim ritstjórnar Fararheill sem tékkaði sig inn á efstu hæð á fimm stjörnu lúxushóteli í Bilbao á Spáni og naut lífsins þrjá nætur án þess að þurfa að setja vísað á raðgreiðslur í kjölfarið.
Síðan hefur töluvert skólp runnið til sjávar og krónan okkar mikið til með. Leita má nú með dyrum og dyngjum að stöndugu lúxushóteli í stærri borgum heims þar sem nóttin rúllar ekki í 30 til 40 þúsund krónur fyrir sæmilegt herbergi með útsýni. Eða hvað?
Reyndar finnast enn borgir heimsins þar sem finna má ótrúlega hagstætt verð á gistingu á allra bestu hótelunum og við getum öll verið sammála um að stundum eru bara aðstæður þannig að við eigum skilið að verðlauna okkur.
Það er sannarlega hægt í Varsjá í Póllandi þar sem meðalverð eina nótt á fimm stjörnu hóteli kostar 15.065 krónur. Það er líka hægt í hinni lúmskt skemmtilegu Marrakesh í Marokkó en meðalverð þar fyrir fimm stjörnu pakkann er 19.524 krónur nóttin. Ekki megum við heldur gleyma Búdapest í Ungverjalandi en þar fæst fimm stjörnu næturfriður fyrir 21.332 krónur eina nótt. Fjórir hundraðkallar í viðbót kaupa nótt í lúxuspakka í Lissabon í Portúgal.
Þá eru fleiri borgir þar sem lúxushótelin hafa þurft að lækka verð þar sem eftirspurn er minni en framboðið. Enginn þarf að óttast himinháa reikninga að meðaltali í Písa á Ítalíu, Brussel í Belgíu, Kaíró í Egyptalandi, Bangkok í Tælandi, Tallinn í Eistlandi né Berlín í Þýskalandi. Í öllum þessum er meðalverð á nótt á fimm stjörnu hóteli milli 24 og 28 þúsund krónur.
Tölurnar eru frá úttekt Hotels.com nú í mars á þessu ári og þó gera megi ráð fyrir hækkunum yfir sumartímann ættu verð að vera nálægt þessu meðaltali. Hafa skal í huga að þetta er meðaltal. Það finnast ódýrari fimm stjörnu hótel og sömuleiðis dýrari.







