Ófáar sögurnar eru til um El Dorado, hina horfnu borg Suður-Ameríku sem bókstaflega var þakin gulli og spænskir leituðu að um aldaraðir og gera reyndar enn. Nú hafa fundist merki um það sem hugsanlega eru leifar mikillar borgar í Hondúras djúpt inni í frumskógum landsins.

Er hún loks fundin? Skjáskot

Er hún loks fundin? Skjáskot

Ný tækni hefur leitt í ljós óvenjuleg merki djúpt inni í skógi landsins sem merkilegt nokk er enn að hluta til ókannaður að mestu. Þar sjást bungur sem ekki þykja geta verið neitt annað en manngerðar og staðsetningin stemmir við fornar lýsingar af borg einni stórri og mikilvægri. Sú hét Ciudad Blanca, Hvíta borgin, og er af ýmsum fræðingum talin vera ástæðan fyrir sögusögnum um El Dorado. Ciudad Blanca á nefninlega að hafa verið kjaftfull af gulli.

Ekkert auðvelt er að ganga úr skugga um þetta því ekki er hægt með góðu móti að ferja vinnuvélar inn í frumskóg án þess að mikið tjón hljótist af. Það verður því að fara gömlu leiðina með skóflur á baki og moka með handafli til að ganga úr skugga um hvort borgin atarna er raunverulega í Hondúras.