Ritstjórn Fararheill tekur eftir að Wow Air auglýsir vart lengur án þess að láta fylgja með á þokkalega áberandi stað smáa letrið sem í tilfelli þess fyrirtækis er langur listi. Það er engu að síður skref í rétta átt og gott að vita að ítrekuð gagnrýni Fararheill fari loks inn um annað hjá Wow og haldist þar. Það var nefninlega ekki raunin hér áður.
Batnandi fólki er best að lifa en Fararheill hættir ekki fyrr en Wow Air auglýsir raunverð á ferðum sínum. Það er að segja hættir að auglýsa Hagkaupsverð þegar enginn kemst neitt nema greiða ofan á það verð að minnsta kosti bókunargjald.
Sem er ARGASTI dónaskapur gagnvart hugsanlegum viðskiptavinum.








