Bandaríska lággjaldaflugfélagið Frontier Airlines hefur tekið upp farangursgjöld og þurfa viðskiptavinir eftirleiðis að greiða skilding fyrir en þó einungis ef flug með félaginu er bókað annars staðar en á vef Frontier.

Frontier er vænsti kostur ferðaþyrstra frá Denver flugvelli þangað sem Icelandair flýgur og íslenska flugfélagið er með sérstakan samstarfssamning við bandaríska félagið. Fólk sem vill lengra en til Denver ætti þannig að panta og greiða farið gegnum Icelandair en sem samstarfsaðili ætti fólk þannig að sleppa við að greiða tæpar fjórtán þúsund krónur fyrir farangur sem það tekur með sér í vélina. Gjaldið tekur nefninlega til handfarangurs.

Flugfélagið vill með þessu beina traffík inn á sinn eigin vef í stað þess að fólk kaupi ferðir gegnum þær þúsundir ferðamiðla sem slíkt bjóða og má slá föstu að fleiri og fleiri flugfélög munu beita svipuðum aðferðum þegar fram líða stundir.