Flugfreyjur Turkish Airlines verða að gera sér að góðu að púðra nefið létt en láta annað mæta afgangi samkvæmt nýjum reglum flugfélagsins sem vakið hafa harðar deilur. Blátt bann, eða rautt í þessu tilfelli, er við að nota skæra eða kynþokkafulla varaliti.

Rauðir og bleikir varalitir falla undir það sem forráðamenn telja of kynþokkafullt en þeir segjast vera að bregðast við kvörtunum frá farþegum sínum en íbúar Tyrklands eru sem kunnugt er bæði kristnir og múslimir en þeir síðarnefndu margir líta hornauga á frelsi kvenna. Er talið víst að kvartanirnar séu frá þeim komnar.

Þær verða því litlausari flugfreyjurnar hjá Turkish en verið hefur en það er þó ekki það eina sem viðskiptavinir þurfa að horfast í augu við því framundan er verkfall hjá flugþjónum flugfélagsins sem hefst 15. maí næstkomandi. Gangi það eftir verða umtalsverðar raskanir á ferðum félagsins.