Allmargir Íslendingar þekkja orðið fyrirtækið Spánarferðir sem hóf í vetur að bjóða til leigu villu eina mikla og stóra nálægt Torrevieja til leigu. Hartnær átta þúsund Íslendingar eru hrifnir af uppátækinu samkvæmt fésbókinni þrátt fyrir að villa Spánarferða sé í allra dýrasta kantinum miðað við flestar sambærilegar villur á þessum slóðum.

Villurnar í boði til leigu víða um heiminn skipta hundruðum þúsunda. Engin ástæða til að eltast við eina einustu villu eingöngu vegna þess að hún er í eigu Íslendinga
Vikuleiga hjá Spánarferðum á annatíma yfir sumrin kostar 249.900 krónur en villan tekur mest átta fullorðna gesti plús fjögur börn í viðbót.
Augnabliks leit á vefnum að spænskum villum til leigu á svipuðum stað með svipuðum íburði leiðir í ljós að þær fást margar á háannatíma að meðaltali hundrað þúsund krónum ódýrara en Spánarferðir bjóða.
Eitt dæmið er þessi átta manna villa með öllum lystisemdum. Sú kostar samkvæmt gengi dagsins um 170 þúsund krónur. Þessi hér er heldur ekki síðri né langt frá. Vikuleiga hér á sumrin kostar samkvæmt meðalgengi 187 þúsund krónur svo dæmi séu tekin.
Vitaskuld er hægt að finna mun dýrari villur og sömuleiðis mun ódýrari líka en punkturinn sá að villa Spánarferða er fjarri því á sérstöku verði og aukinheldur er full ástæða til að lesa vel smáa letrið. Þar stendur til dæmis að 40 þúsund króna aukagjald gæti lent á leigjendum séu þeir ekki búnir að rýma húsið á hádegi brottfarardaginn.







