Tíðindi

Ekki langt yfir skammt

  10/01/2011september 30th, 2014No Comments

Stór hópur Íslendinga sættir sig ekki við að láta mata sig endalaust af íslensku ferðaskrifstofunum enda fer úrval ferða á þeim bæjunum seint í bækur sem fjölbreytt eða frábært.

Sífellt fleiri skipuleggja sínar eigin ferðir og þá er hið besta mál að vita af helstu ferðamörkuðunum erlendis. Vefmiðlum sem fylgjast með tilboðum úr hinum og þessum áttunum alla daga ársins til þess að þú þurfir þess ekki. Ein sú allra vinsælasta er Travelzoo.

Vefmiðillinn er margverðlaunaður enda fer fátt framhjá leitarvélum þess og finna má þar flest bestu ferðatilboð sem í boði eru á heimsvísu dag hvern. Er allt í boði þar sem hugur girnist og það á bestu fáanlegu verðunum.

Fararheill.is mælir sterklega með Travelzoo.