Flugfélagið easyJet býður nú 30 prósenta afslátt af öllum flugum sínum tímabundið til miðnættis á þriðjudaginn kemur. Gildir þetta um öll flug félagsins frá 2. febrúar til 13. júlí.
Með tilliti til að easyJet er alla jafna með hreint ágæt verð er kjörið að verða sér úti um afslátt sem nýta má í annað nýtilegra en flugfélagið flýgur um alla Evrópu og reyndar niður til Afríku líka.
Samhliða flugtilboði sínu býður félagið einnig allt að 70 prósenta afslátt af útvöldum hótelum.
Heimasíða easyJet hér.






