Lítil ferðahjörtu ritstjórnar Fararheill glöddust við að sjá auglýsingu ferðaskrifstofunnar Wow Travel um helgina þar sem boðið var upp á vikudvöld á Costa Brava á Spáni í sumar fyrir 62.500 krónur á mann miðað við fjóra saman.

Raunverð á ferð Wow Travel til Costa Brava á lítið skylt við auglýst verð ferðaskrifstofunnar. Skjáskot af vef Wow Travel.
Nákvæmlega ekki neitt að slíku tilboði og ótrúlega gott verð miðað við að önnur ferðaskrifstofa er nýbúin að auglýsa sértilboð til sama áfangastaðar sem kostuðu rúmlega 20 þúsund krónum meira á kjaft. Tilboð Wow Travel þýðir að öll fjögurra manna fjölskyldan kemst í frí fyrir 250 þúsund krónur sléttar.
En því miður er það fjarri lagi þegar allt kemur til alls. Sé betur að gáð dekkar uppgefið verð í auglýsingum Wow Travel engan veginn raunkostnað við þessa ferð. Í það vantar bókunargjald, töskugjald, gistináttaskatt og fokdýra og langa rútuferð til og frá flugvelli.
- Bókunargjaldið reynist vera 2.000 krónur aukalega sem bætast ofan á í bókunarferlinu. Einhverra hluta vegna er bókunargjaldið mun ódýrara með Wow Travel en þegar bókað er flug eitt og sér með Wow Air þar sem hver einstaklingur greiðir 900 krónur á hvern fluglegg.
- Hvergi á vef Wow Travel er sérstaklega tiltekið að greiða þarf sérstakan gistiskatt beint á hótelið fyrir hvern og einn. Sú upphæð reyndar engin ósköp eða 0,45 evrur per nótt á mann á þriggja stjörnu hótelum í Katalóníu. Aftur er það engin stórupphæð eða rúmar tvö þúsund krónur fyrir fjölskylduna alla en kostnaður engu að síður.
- Enginn farangur er innifalinn í uppgefnu verði Wow Travel. Fararheill á eftir að sjá þá fjögurra manna fjölskyldu sem ferðast með ekkert í vikufrí á Spáni svo óhætt er að bæta við tveimur töskum eða svo. Það gerir 4.800 krónur á tösku eða 9.600 samtals en þó aðeins ef pantað er fyrirfram á netinu.
- Allra verst er þó að rúmlega klukkustundar rútuferð til og frá áfangastaðnum er alls ekki talin með sem kostnaður í auglýsingu Wow Travel. Fólk á eftir að koma sér á staðinn og samkvæmt bókunarvél Wow Travel kostar það fram og aftur 46.400 krónur samtals.
Að því gefnu að fólk finni auglýst verð á 62.500, en ekki er tekið fram hversu mörg sæti voru eða eru í boði á því lágmarksverði, þarf því að bæta ofangreindum upphæðum við það verð. Fjölskylduferðin sem þannig er auglýst á 250 þúsund krónur sléttar fyrir fjóra kostar því með öllu saman rúmar 310 þúsund krónur í heildina. Það gerir 77.525 krónur á mann en ekki 62.500.
Eitt í viðbót er rétt að hafa í huga við þessa ákveðnu ferð til Costa Brava. Við sjáum ekki betur en allar brottfarir Wow til Barcelóna fari seinnipart dags frá Keflavík í sumar. Það þýðir að lending í borginni er klukkan 22 að kvöldi. Gefum okkur klukkustund fyrir alla að komast út með farangur og þá er fólk komið í rútu klukkan 23. Þá er eftir vel rúmlega klukkustundar akstur á hótel á Costa Brava og þangað vart komist fyrir miðnætti.
Ekki mikið betra er í boði á bakaleiðinni en Wow flýgur frá Barcelóna og heim í þessu tilfelli klukkan 23 um kvöld og lent í Keflavík um miðja nótt. Ekki kemur fram á vef Wow Travel hvort farþegum gefist kostur á að dvelja á hótelum sínum frameftir degi eða í öllu falli geyma farangur sinn. Sé það ekki í boði er líklegt að síðasti dagur sumarleyfisferðarinnar verði ansi hreint erfiður.
Heimasíða Wow Travel hér.






