Ýmislegt miður hefur verið sagt um flugfélagið SAS síðustu mánuðina og ekki var langt í gjaldþrot þess fyrirtækis í lok síðasta árs. SAS má þó eiga það skuldlaust að fáir aðrir aðilar eru reglulega að bjóða fargjöld til framandi staða í Asíu fram og til baka á hundrað þúsund krónur.

Enn og aftur ágæt tilboð SAS frá Köben, Stokkhólmi eða Osló til fjarlægra landa Asíu á afar samkeppnishæfu verði
Vissulega er SAS að ýmsu leyti barn síns tíma og félagið glímir við gjörbreyttar aðstæður á flugmarkaði í Evrópu en á móti kemur að það er sannarlega eitt það allra stundvísasta í heiminum, þar fær fólk ennþá heitan og sæmilega góðan mat í flugi og fargjöld þess til víðs fjarri staða eru á pari við það besta sem gerist.
Til að mynda er nú hægt að verða sér úti um far til Shanghai eða Peking í Kína fyrir 104 þúsund krónur báðar leiðir, Hong Kong og Tokíó fyrir 120 þúsund fram og aftur og fjölda annarra forvitnilegra staða á verði sem er feitt samkeppnishæft við það ódýrasta sem býðst frá London eða Frankfurt.
Þær tölur taka vitaskuld til ferða félagsins frá Kaupmannahöfn en ekki Íslands en sé fólk fyrirhyggjusamt er vel hægt að komast fram og aftur til Köben fyrir 30 þúsund krónur eða svo. Takist það er komist til Kína fyrir 140 þúsund krónur á mann frá Íslandi.
Sé aftur miðað við að allra ódýrustu skipulegu Kínaferðir í boði héðan kosta eigi minna en hálfa milljón króna á mann þýðir þetta að fólk hefur þá 360 þúsund krónur eftir í buddunni til að arka um Asíu eins og það lystir. Og sá peningur þar um slóðir er töluverð upphæð fyrir þorra fólks.
Tilboð SAS er í boði til 4. febrúar. Heimasíðan hér.







