Hartnær þrír sólarhringar eru nú liðnir síðan Fararheill benti Úrval Útsýn góðfúslega á að leiðrétta leiðinlega vitleysu á vef sínum. Vitleysu sem gæti komið viðskiptavinum þeirra illa þegar fram líða stundir. En þessari stærstu ferðaskrifstofu Íslands virðist vera slétt sama um eigin viðskiptavini.

Það er ekki jafn sáraeinfalt fyrir viðskiptavini Úrval Útsýn á Lloret de Mar að heimsækja Barcelóna eins og látið er að liggja hér. Skjáskot af vef ÚÚ.
Hvaða ályktun aðra er hægt að draga þegar rangar og misvísandi upplýsingar um ferð sem ferðaskrifstofan auglýsir eru látnar standa þrátt fyrir ábendingar um hið gagnstæða? Hvaða gagn getur ferðaskrifstofa haft af því að blekkja sína eigin viðskiptavini?
Stórt er spurt og ekki höfum við svörin hér hjá Fararheill. Við hins vegar vitum mætavel að starfsmenn hjá Úrval Útsýn hafa séð færslu okkar þess efnis að ekki séu neinar lestarferðir í boði frá sumardvalarstaðnum Lloret de Mar á Costa Brava í Katalóníu á Spáni.
Úrval Útsýn auglýsir nefninlega að það sé ofsalega einfalt og sniðugt að kíkja til Barcelóna meðan fólk dvelur í Lloret de Mar og mælir sérstaklega með lestarferð sem tekur klukkustund eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af vef ferðaskrifstofunnar.
Þetta er della eins og við bentum á á miðvikudaginn var hér og við förum ekki aftur út í þá sálma. Þessar upplýsingar á starfsfólk ÚÚ að vita og getur í öllu falli komist að. Nema þetta sé enn eitt dæmið um að íslensk ferðaskrifstofa sé að bjóða fólki dvöl á stöðum sem það sjálft hefur aldrei komið til eða tekið út.
View Costa Brava – lestarsamgöngur in a larger map






