Tíðindi

Berlín á tilboði með Wow Air

  14/01/2013desember 24th, 2013No Comments

Wow Air býður til miðnættis í kvöld tilboð á flugi til Berlínar og fæst önnur leiðin á 14.900 krónur og ódýrast heim aftur á 15.051 krónu. Með bókunargjaldinu kostar því aðeins 30.851 krónu að fara fram og aftur.

Það er hið besta mál enda Berlín bráðskemmtileg og skiptir engu hvenær árs hún er heimsótt. Ætíð má finna eitthvað þar að dunda og Þjóðverjarnir alltaf jafn hrifnir af Íslendingum nú sem fyrr.

Tilboðið miðast við að engar séu töskur teknar með en greiða þarf aukalega fyrir slíkt eins og kunnugt er. Ferðatíminn á þessu tilboði nær frá janúar og fram til 25. mars.

Heimasíða Wow hér.