Það ætti að vera neytendum til umhugsunar að ekki allt á Íslandi hefur breyst þrátt fyrir stórfelld gjaldþrot, bankahrun og áköll þúsunda um breytingar og gagnsæi.
Létt verðkönnun Fararheill.is leiðir í ljós að merkilega lítill munur er á milli flugfélaga og ferðaskrifstofa á flugferðum. Svo merkilega lítill að hann er enginn.
Kannaði Fararheill.is verð á flugferðum frá Alicante á Spáni aðra leiðina heim aftur í byrjun júní. Í ljós kemur að ódýrustu fargjöldin fengust hjá Iceland Express og Heimsferðum 29.910 krónur. Nákvæmlega sama upphæð upp á krónu. Aðeins dýrari voru Sumarferðir, Plúsferðir og Úrval-Útsýn, sem eru í eigu Iceland Express, en þessar skrifstofur allar buðu flugið heim frá Spáni á 34.950 krónur. Greinilegt að sameiginlegt eignarhald þar stendur í vegi fyrir samkeppni enda ekki fyrsta dæmið um nákvæmlega sömu verðin milli þessara þriggja aðila.
Heimsferðir og Iceland Express bjóða líka flug frá Barcelona. Ódýrasta gjald Iceland Express sem fannst var á 27.845 krónur en Heimsferðir buðu sín flug á 34.950 þaðan.






