Ritstjórn Fararheill hefur lítið komist í kynni við Guð en þeir sem vita betur segja vegi hans órannsakanlega. Hið sama er hægt að segja um fargjaldaáætlun Icelandair. Ekki er nokkur einasta leið að komast til botns í því hvernig menn þar á bæ ákveða verðlagningu. Enda kannski vænlegast að hafa þetta allt ógegnsætt fyrir fyrirtækið.

Fólk sem þarf aðeins að komast aðra leiðina með Icelandair ætti að hugsa sig um tvisvar og reyna að komast með öðrum flugfélögum sé þess nokk

Fólk sem þarf aðeins að komast aðra leiðina með Icelandair ætti að hugsa sig um tvisvar og reyna að komast með öðrum flugfélögum sé þess nokk

Tökum dæmi:

Flug til Boston 4. desember og heim aftur þann 7. desember. Farið út kostar ódýrast á betra almennings farrými, eða Economy Class Flex eins og það heitir hjá Icelandair, 65.480 krónur og heim aftur á sama farrými 60.760 krónur. Samtals krónur 126.240 krónur.

Hvergi á vef flugfélagsins kemur fram að dýrara sé að kaupa aðra leiðina á neinn áfangastað flugfélagsins né þá heldur skýring á því. En stundum er raunin sú að fólk kemst ódýrara fram og aftur með því að bóka bara aðra leiðina í einu. Hvað gerist ef við reynum það hjá Icelandair?

Þá fæst allt í einu flug til Boston á sama farrými og í sömu sætum og við fyrri bókun nema nú hefur sætið hækkað feitt í verði. Önnur leið til Boston kostar nú 85.430 krónur eða réttar 20 þúsund krónum dýrara en áður. Það er hins vegar bakaleiðin sem fer alveg með þetta. Farið aðra leið frá Boston til Reykjavíkur í nákvæmlega sömu sætum og nákvæmlega sömu vél kostar nú 112.010 krónur. Samtalan er út í hróa hött og allt hans lið eða réttar 197.440 krónur. Það er aðeins

Ekki svo að skilja að nokkur maður bóki tvívegis fram og til baka til Boston eða annarra áfangastaða sé verðið hærra en þetta vekur upp spurningar fyrir þá sem aðeins þurfa að komast aðra leiðina.

Hvers vegna í ósköpunum munar 71.200 krónur? Sama flug, sama farrými, sami bókunartími en fráleitt sama verð.