Erpur Eyvindarson elskar einhverjar mellur en ritstjórn Fararheill er öllu meira fyrir spennandi ævintýraferðir um heimsins höf og lönd.
Þó með þeim fyrirvara að slíkar ferðir hæfi veski meðalgúbbans á klakanum og við erum flest meðalgúbbar þótt einhverjir kunni að neita því þangað til komið er vel í glas.
Ein mjög safarík verð er nú á lista ferðaskrifstofunnar Oriental.is og er í boði í mars á næsta ári fyrir 475.500 krónur á mann eða 951 þúsund krónur á par eða hjón. Þeir kalla þessa ferð landkönnunarferð sem reyndar segir alls ekki neitt því öll ferðalög á nýjar slóðir eru landkönnunarferðir.
Um er að ræða flug til Bangkok í Tælandi þar sem dúllast verður í tvo daga áður en flogið er áfram til Phnohm Pehn í Kambódíu og við tekur ferð til þess stórkostlega staðar Angkor. Þar er jú hið magnaða hof Angkor Wat auk annars sem er nógu tilþrifamikið til að fólk taki andköf aftur og aftur.
En ekki aðeins er Angkor skoðuð í þaula heldur er ferðinni svo haldið áfram til hins undarlega smáríkis Laos í kjölfarið. En í stað þess að staldra við í Vientiane liggur þessi ferð til Luang Prabang borgar norðarlega í landinu. Þú kannast eflaust ekki við staðinn en borgin atarna er ein af fáum borgum heims sem fá fimm stjörnur eða fullt hús stiga hjá ferðalöngum Tripadvisor og henni er lýst í Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna með óvenju sterkum lýsingarorðum.
Þetta er eitthvað sérstakt og ber að fagna öllu slíku hjá íslenskum ferðaskrifstofum sem of margar selja sömu pylsuna ár eftir ár. Nánar hér.
* Fararheill.is er á engan hátt tengd ferðaskrifstofunni Oriental og skrif þessi eru alfarið hrifningar vegna.







