Tíðindi

Óeðlilegar verðhækkanir í ferðabransanum

  30/11/2012No Comments

Það fer ekkert á milli mála að fólki finnst verð hækka hraðar en eðlilegt getur talist í ferðabransanum hérlendis. Skoðanakönnun Fararheill leiðir í ljós að 67 prósent þátttakenda segja ekki eðlilegt hversu mjög verð hafa hækkað.

Fólk á leið erlendis greiðir nú gróflega reiknað helmingi hærra fyrir en það gerði árið 2006 miðað við bestu tilboð á flugi þá og nú.

Þetta á vart að koma á óvart. Verðlag almennt í landinu hefur hækkað mikið undanfarin ár og ferðir og ferðalög þar ekki undanskilin.

Ástæða þess að Fararheill kannaði hug lesenda var meðal annars sú að fyrir sex árum síðan, 2006, voru æði mörg flugtilboð Iceland Express á þeim tíma vel undir tíu þúsund krónum aðra leiðina. Sú upphæð var með sköttum, öllum gjöldum og auðvitað engum sérstökum farangursskatti.

Í dag fást vart flug aðra leiðina út undir 20 þúsundum króna þegar öll gjöld og farangursskattur hefur verið saman talinn. Það er því gróflega reiknað helmingshækkun frá árinu 2006 miðað við bestu tilboðin þá og nú.

Það er fáránlega mikil hækkun að mati 67 prósent þeirra 167 sem þátt tóku í könnun þar að lútandi á vef Fararheill.

Nítján prósent svarenda til viðbótar segja slíka hækkun í það allra mesta meðan fjórtán prósent segja slíkar hækkanir eðlilegar. Allt hafi gjörbreyst síðan 2006 og ekki hægt að bera slíkt saman.