Ókei. Við gerum okkur flest grein fyrir nú til dags að viðskiptafólk okkar er fjarri því eins sniðugt og látið var í veðri vaka hér um árabil fyrir svokallað bankahrun eins og þeir sem sluppu án teljandi harms kalla það þegar Ísland var millimeter frá því að fara á hausinn 2008.

Auglýsing Úrval Útsýn ætluð viðskiptaferðalöngum landsins. Spurt er hvort fyrirtækið hafi ekki efni á villupúka því þetta er lítt traustvekjandi
En við skulum heldur ekki ganga út frá því sem gefnu að þetta sama fólk sé algjörlega skyni skroppið heldur.
Engu að síður gengur auglýsing „viðskiptaferðadeildar“ ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn um hversu frábærlega sú deild er fyrir viðskiptaferðalanga nokkuð út frá því að fólk sé dálítið heft.
Ekki aðeins er auglýsingin vaðandi í málfræðivillum og mega ÚÚ-menn prísa sig sæla að ákveðinn fyrrum sendiherra Íslands í Færeyjum hafi ekki áhuga á viðskiptaferðum.
En ritstjórn Fararheill spyr sig hversu traustvekjandi það sé fyrir jón jónsson hjá Alheimskompaníinu eða jónu jónsdóttur hjá rokk&ról ehf. að kaupa ferðir af ferðaskrifstofu sem kann ekki að stafsetningu.






