Tíðindi

Baðstrandalífið að fara með Dani

  28/11/2012febrúar 4th, 2014No Comments

Einn úr ritstjórn Fararheill bjó um tíma í Kaupmannahöfn og man vel eftir stórum augum margra íslenskra félaga þegar þeir uppgötvuðu að í og við borgina eru ágætar strendur og það vel pakkaðar af fólki á sólríkum dögum sumars.

Slíkar sólstrendur eru alls ekki einskorðaðar við Kaupmannahöfn því það finnast fínustu strendur mjög víða í þessu litla landi. Og brátt bætist ein enn við.

Margir kannast við Valbyparken og þar á að byggja eina sandströndina til og þannig bæta við þær tvær sem þegar njóta vinsælda hjá borgarbúum; Amagar strönd og Svanemølle strönd.

Borgarstjóri Kaupmannahafnar segir ekki veita af fleiri ströndum við borgarbúar séu trylltir í strandlíf á sumrin og má það til sanns vegar færa. Á góðum sumardögum eru vart færri að striplast á Amager strönd en á Benídorm töluvert sunnar í álfunni.

Nýja ströndin í Valby skal vera klár sumarið 2015. Bara vonandi að litla niðurtroðna krónan okkar hafi aðeins náð sér á þeim tíma svo við íbúar gömlu nýlendunnar geti tekið þátt í fjörinu án þess að fara á hausinn.


View Strandstaðir í Kaupmannahöfn in a larger map