Netklúbbur Heimsferða auglýsir nú síðustu sætin til Mallorca þann 10. júní í tvær vikur með öllu inniföldu á Palma Bay Club á 124.900 fyrir manninn miðað við par eða hjón. Gerir það 249.800 í heildina samkvæmt vefsíðu Heimsferða. Þá er reyndar ótalinn akstur til og frá flugvelli þannig að raunverð er 254.600.
Samkvæmt Tripadvisor er hótelið rétt í meðallagi og er í 17. sæti yfir öll hótel á El Arenal svæðinu á Mallorca. Engu að síður er þetta allbærilegt tilboð miðað við það sem gengur og gerist á Frónu þessa kreppudaga. Það munar talsvert um að þurfa ekki að greiða fyrir mat og drykki í tvær vikur þegar hver evra er stöðug í 170 krónum.
El Arenal svæðið er eitt af mest skipulögðu ferðamannasvæðunum á Mallorca og sem slíkt ágætt fyrir barnafjölskyldur og þá sem ekki gera alvarlegar kröfur.
Sjá allt um Mallorca hér.






