Tíðindi

Icelandair tapar milljarði á mánuði

  09/05/2009maí 11th, 2014No Comments

Flugfélagið Icelandair tapaði alls 3.6 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2009 sem þýðir að hver rekstrarmánuður er að kosta félagið 1.2 milljarð króna.

Engu að síður fullyrðir félagið að rekstrartímabilið sé mun betra en áætlanir gerðu ráð fyrir og bendir á að heildarveltan á sama tímabili hafi verið 21 milljarður krónar sem er tæplega helmingi betra en á sama tíma fyrir ári.

Heimildir Fararheill.is segja stöðu flugfélagsins enn nokkuð trausta en nokkrir mánuðir séu síðan farið var í þær niðurskurðaraðgerðir sem mögulegt var. Fækkað var þá í áhöfnum og erlendir flugmenn ráðnir til félagsins á lægri töxtum en gengur og gerist hér heima. Ljóst sé að mati heimildarmanns að flugfélagið geti ekki lengi starfað með milljarðatapi en fari allt á versta veg er ekki ólíklegt að ríkið grípi þar inn í.