Tíðindi

Sumartilboð Wow Air til sölu

  19/11/2012desember 19th, 2013No Comments

Wow Air hefur tekið upp á þeirri nýbreytni að bjóða sumartilboð til tveggja áfangastaða sinna nú 19. nóvember. Í boði eru ferðir aðra leiðina til Mílanó eða Barcelóna á sértilboðsferði til miðnættis í kvöld.

Sumartilboðin farin að streyma inn strax í nóvember sem er að mörgu leyti hið jákvæðasta mál. En hvergi finnst fargjald á auglýstu verði til Mílanó.

Nær tilboðið til allra flugferða félagsins til þessara borga næsta sumarið en áætlunarferðir þangað hefjast í júníbyrjun. Því er hægt að komast út á háannatíma á ágætu verði og er það vel.

Hins vegar er auglýst verð aðra leiðina með sköttum til beggja borga, 19.900 krónur, hálf kjánalegt því ofan á bætist bókunargjald og fáir fara töskulausir í lengri borgarferðir. Raunverð aðra leiðina með eina tösku er því  23.700 krónur á mann.

Fyrir utan þá staðreynd að til Mílanó finnast engin fargjöld á vef Wow Air á auglýstu verði. Lægsta netverð á vef þeirra í sumar við úttekt klukkan 11 þann 19. nóvember leiðir í ljós að fargjaldið kostar ódýrast 20.291 en ekki 19.900 krónur. Þessu er öfugt farið í tilfelli Barcelóna en í boði eru ferðir frá 18.520 krónur þegar þetta er skrifað eða 1.380 krónum ódýrara en auglýst verð.

Væri til of mikils mælst að félagið auglýsi rétt verð en þetta er fjarri í fyrsta sinn sem Wow Air auglýsir fargjöld sem stemma ekki við raunupplýsingar á vef þeirra. Er það í takti við mottó félagsins að vera best og fremst í öllu?

Heimasíða Wow Air hér.