Það kann að hljóma hjákátlega og jafnvel heimskulega að bláfátækir Spánverjar séu enn að bisast við að opna nýja flugvelli en það er sannarlega raunin og ef marka má síðustu fregnir mun nýr alþjóðaflugvöllur Murcia loks opna í apríl á næsta ári.
Það eru góðar fréttir fyrir þær þúsundir Íslendinga sem það hérað sækja heim ár hvert en fjöldi Íslendinga á þar íbúðir og er það líklega vinsælasti staður landans á Spáni fyrir utan Torrevieja sjálfa.
Corvera flugvöllur heitir sá nýi og dregur nafn sitt af nálægum bæ sem stendur í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Murcia til suðurs. Þaðan á að vera sáraeinfalt að komast til og frá og mun Corvera hafa það framyfir flugvöllinn í Alicante að lestir munu ganga til og frá.
Þegar hafa nokkur lággjaldaflugfélög tilkynnt um ferðir þangað næsta sumarið en ekki er ljóst hvort íslenskir aðilar hafa hugsað sér að bjóða upp á bein flug til Corvera. Það hangir á því að ekki verði frekari tafir á byggingu vallarins sem átti fyrst að opna sumarið 2011.
[nokia-maps template=“nokia.blue.place“ sizes=“{‘width’: ‘580’,’height’: ‘350’}“ display_options=“no-contact“ href=“http://places.nlp.nokia.com/places/v1/places/loc-dmVyc2lvbj0xO3RpdGxlPUNvcnZlcmE7bGF0PTM3LjgzMDM7bG9uPS0xLjE1Njc4O2NpdHk9TXVyY2lhO2NvdW50cnk9RVNQO2Rpc3RyaWN0PUNvcnZlcmE7c3RhdGU9TXVyY2lhK1JlZ2lvbjtjb3VudHk9TXVyY2lhO2NhdGVnb3J5SWQ9Y2l0eS10b3duLXZpbGxhZ2U;context=Zmxvdy1pZD0xMzI5ZmI0MS1hMzBlLTRjZDctOGQ4OC1mM2IxYTY0M2ExOWZfMTM1MjczNDEyNzU5Nl8wXzg4MjUmcmFuaz0xJmJib3g9LTEuMTY0NDUlMkMzNy44MjU4MyUyQy0xLjE1MTYyJTJDMzcuODM2NA“ zoomLevel=“14″ tileType=“map“ ]






