Markúsartorgið í Feneyjum er yfirleitt vettvangur ljósmyndara og kaffihúsagesta sem greiða okurverð fyrir að planta rassi á þessu vinsælasta torgi borgarinnar. Þessa stundina hins vegar gæti sama torg nýst sundáhugafólki.

Gæti ég fengið ábót á kaffið mitt takk. Þessir gestir létu flóð ekki aftra sér frá góðum kaffibolla á Markúsartorginu í dag en Feneyjar eru enn einn ganginn á kafi
Allt er á floti í Feneyjum enn einn ganginn en flóð eru tíð í Feneyjum sem liggur eins og flestir vita ansi lágt og er þrátt fyrir ýmsar varnir mjög berskjölduð fyrir lægðum sunnan að. Séu þær nógu krappar og rigning með er það næstum hundrað prósent ávísun á vatnavexti og stundum flóð.
Þó borgarbúar séu eflaust lítt hrifnir er þetta ekki endilega svo slæmt fyrir ferðafólk. Svo lengi sem stígvél eru við höndina, eða á fótum, er líkast til skrambi gaman að göslast um Feneyjar á kafi. Það er allavega mun fróðlegra að sýna vinum og ættingjum heimafyrir myndir af þér í sundi á Markúsartorginu en þessar hefðbundnu.






