Annaðhvort elskar maður Frakka eða hatar. Hverjum öðrum dytti í hug að láta byggja stóran fimm metra háan og skínandi skúlptúr af knattspyrnumanninum Zinedine Zidane að skalla Ítalann Marco Materazzi og planta á besta stað í bænum?

Það var og. Nú er hægt að sjá Zidane í bronsi skalla Ítalann Materazzi á besta stað í París

Það var og. Nú er hægt að sjá Zidane í bronsi skalla Ítalann Materazzi á besta stað í París

Atvikið þekkja allir unnendur knattspyrnu og líkast til margir aðrir en þar er vitaskuld vísað til þess þegar knattspyrnugoðið franska tók sig til að skallaði Ítalann í úrslitaleiknum á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu árið 2006.

Fékk Zidane umsvifalaust rautt spjald og flestir telja að sú brottvikning hafi orðið til þess að það voru Ítalir sem hófu titilinn á loft en ekki Frakkar.

Skúlptúrinn sem nú stendur á torginu fyrir framan Pompidou listamistöðina hefur vakið miklar deilur en franska knattspyrnusambandið telur ekki til eftirbreytni að sýna slíkan gjörning.

Þessu mótmæla listaspírur borgarinnar sem segja þetta engu minni list en hvað annað.

Skúlptúrinn er þó ekki kominn til að vera. Hann er hluti af tímabundinni sýningu listamanns frá Alsír en henni lýkur í lok janúar á næsta ári.