Fáum dylst að flugfélög mörg hver reyna nú sitt ítrasta til að kreista farþega sína um alla mögulega seðla með ýmsum vafasömum aukagjöldum.
Með þeim hætti geta þau auglýst fargjöld afar ódýrt en uppgefin fargjöld þessi dægrin, sérstaklega hjá lággjaldaflugfélögum, miðast flest við að fólk ferðist með ekki neitt og hafi ekkert val um sæti eða þjónustu.

Aukagjöldin eru farin að kosta skildinginn hjá flestum flugfélögum og því ráð að kynna sér þau gjöld í þaula
Nú er langt síðan hluti ritstjórnar Fararheill káraði sinn skerf af markaðsfræði en það er einhvern veginn á skjön við heilbrigða skynsemi að auglýsa sífellt hræódýr flugfargjöld þegar flestir, ef ekki allir, sem ferðast og fljúga vita mætavel að þau fargjöld eiga lítið skylt við raunveruleikann.
Dæmi má taka af Wow Air sem auglýsir þessa stundina flugtilboð til Kaupmannahafnar á 12.900 krónur. Enginn kemst þó neitt á því verði heldur þarf að greiða 900 króna bókunargjald áður en þú getur hreyft legg eða lið. Raunverð til Kaupmannahafnar er því 13.800 en ekki 12.900. En seinni talan er auðvitað miklu meira sexí í auglýsingum.
Fyrir það verð máttu heldur ekki taka neinn farangur með þér til Köben og það eru þau gjöld sem eru farin að velkjast allverulega fyrir fólki enda farangursgjöld eins mörg og misjöfn og stjörnurnar í himingeimnum. Og enginn hefur nokkra tölu á þeim.
Fararheill tók saman að gamni farangursheimildir og gjöld nokkurra flugfélaga sem fljúga til eða frá landinu í þeirri von að það gefi fólki hugmynd um raunkostnað við flug. Enda er það staðreynd að afar fáir ferðast mikið erlendis án þess að taka nokkrar nauðsynjar með sér.
Airberlin (23 kíló) Icelandair (23 kíló) easyJet (20 kíló) Wow Air (20 kíló) Norwegian (20 kíló) SAS (23 kíló) Delta (23 kíló)
* SAS 45€ fyrir tíu kíló umfram 23
** Delta önnur 23 kg. taska 9.100 krónur
*** Farangursgjald Norwegian fer eftir lengd flugs
**** Í tilfelli easyJet er verð námundað í næstu heilu tölu
***** Greiddar eru 100€ aukalega fyrir töskur frá 23.-32 kíló
****** Öll verð miðast við flug á ódýrasta farrými og gengi krónu kl 21 þann 4.nóvember 2012







