Fimm borgir heims fást á sérstöku tilboðsverði þessa stundina hjá Wow Air og Icelandair.
Áfram er hægt að komast til Kaupmannahafnar með Wow Air fyrir 12.900 krónur samkvæmt auglýsingum. Raunverð er þó 13.800 krónur en ekki 12.900 því bókunargjald bætist við það verð. Með tösku meðferðis hækkar fargjaldið um 2.900 krónur í viðbót og fyrir þorra fólks kostar flugfarið því aðra leiðina með öllu samtals 16.700 krónur. Engir sérstakir ferðadagar eru tilteknir en leit Fararheill leiðir í ljós að flug á þessu verði fæst fyrst í janúar.
Tilboð Icelandair til borganna Osló, Frankfurt, Seattle og Glasgow gilda líka frá og með janúar og fram til mars eða apríl á næsta ári en þau tilboð eru aðeins í boði til hádegis á morgun 7. nóvember og miðast öll við ódýrasta farrými.
Til Glasgow í Skotlandi er komist frá Íslandi á 14.900 krónur frá 9. janúar til 23. april. Báðar leiðir fást ódýrast á 30. 500 krónur.
Til Osló kostar farið sömuleiðis 14.900 krónur aðra leiðina milli 9. janúar og 25. mars. Báðar leiðirnar fást frá 28.300 krónum
Frankfurt í Þýskalandi er sömuleiðis í boði og aftur í janúar og fram til 23. apríl. Verðmiðinn þangað 16.900 krónur aðra leiðina og fram og til baka ódýrast frá 36.200 krónum.
Til Seattle kemst fólk milli 11. janúar og 26. mars fyrir 36.900 krónur aðra leiðina. Leiki hugur að snúa aftur heim kostar flug báðar leiðir ekki minna en 68.600 krónur.
Inni í verði Icelandair er bókunargjald og taska upp að 23 kílóum fær að ferðast með frítt.
Heimasíða Wow Air.
Heimasíða Icelandair.






