Þeir eru eiginlega teljandi á litlafingri annarar handar, sólríkir áfangastaðir sem innlendar ferðaskrifstofur bjóða landanum upp á yfir háveturinn.
Í raun stendur valið aðeins um Orlando í Flórída eða Kanaríeyja eins og verið hefur undanfarna áratugi. Aðrir staðir í beinu flugi héðan eru einfaldlega of kaldir til að hægt sé að staupa sig með rauðvíni og gleypa í sig franska osta léttklædd á veröndinni langt fram eftir kvöldi á þeim tíma ársins.
Stutt leit hjá þeim stærstu hérlendis leiðir í ljós að vikudvöl á lakasta hóteli í boði á Kanarí í desember, janúar, febrúar eða mars fæst ekki ódýrari en í kringum 160 til 170 þúsund krónur á mann og ekkert þar innifalið. Fari par eða hjón saman verður því að punga út rúmlega 300 þúsund krónum fyrir sólarglætu í andlitið þegar Kári hinn íslenski er í sínum langversta veðurham.
Hafi fólk þor og vilja til að prófa nýja hluti og geri ekki of mikið mál úr því að millilenda í London á heim- og útleið er hins vegar hægt að njóta viku á fimm stjörnu lúxushóteli með öllu inniföldu alla leiðinlegustu mánuði ársins á mun lægra verði og það ekki svo ýkja langt frá Kanaríeyjum.
Staðurinn er Agadir í Marokkó en þangað er komist frá Bretlandi frá desember og fram til mars í lúxusdvöl í viku fyrir 64 þúsund krónur á mann plús flugkostnað til og frá Íslandi.
Til London hefur fólk komist fyrir um 40 þúsund krónur fram og aftur síðustu misserin og þannig er heildarkostnaður við dúlleríið í Agadir alls rétt rúmlega hundrað þúsund krónur á mann.
Auðvitað má endalaust teygja og toga hvað kostar að lifa á Kanarí eina viku en ef lágmarksverð fyrir tvo eru rúmar 300 þúsund plús matur, vín og ostar er auðvelt að reikna að vikan í Agadir er helmingi ódýrari ferðist tveir saman.
Það er breska ferðaskrifstofan Travel Wasp sem þetta tilboð býður þessa stundina og er flogið frá Gatwick en þangað fljúga einmitt bæði Wow Air og Icelandair.
* Miðað við miðgengi krónu gagnvart bresku pundi þann 30.október 2012.






