Áhugasamir komast billegar en venjulega til London, Kaupmannahafnar og Berlínar þennan daginn að því gefnu að fólk kaupi miða sem fyrst.

Æði skemmtileg leið til að kynnast Berlín er á Segway-hjóli sem hægt er að leigja. Þannig er komist yfir æði margt á skottíma
Iceland Express býður áfram flug aðra leið til London eða Kaupmannahafnar á 16.900 krónur en hvergi kemur fram hversu lengi það tilboð verður í boði.
Wow Air skýtur fólki aðra leiðina til Berlínar fyrir 14.900 krónur plús farangursgjald en tryggja verður sér farið fyrir miðnætti í kvöld. Ferðatíminn er frá 15. október og fram í mars á næsta ári.






