Tíðindi

Mikill verðmunur til Manchester

  04/10/2012janúar 22nd, 2014No Comments

Tæplega tuttugu þúsund króna verðmunur er á lægstu fargjöldum easyJet annars vegar og Icelandair hins vegar til Manchester í Bretlandi í apríl á næsta ári.

Eins og Fararheill hefur greint frá ætlar easyJet að bæta við Edinborg og Manchester í beinu flugi til og frá Íslandi í mars á næsta ári en Icelandair hefur lengi verið eina leið Íslendinga til Manchester.

Nett úttekt á þessari stundu leiðir í ljós að ódýrasta fargjaldið í boði með Icelandair til Manchester og heim aftur í byrjun apríl á næsta ári kostar einstakling 40.220 með sköttum og gjöldum.

Fram og til baka með easyJet á sama tímabili kostar fjargjaldið um 19 þúsund krónur. Þá á eftir að greiða fyrir farangur svo gróflega má segja að verð á mann sé raunverulega í kringum 24 til 25 þúsund krónur.

Til að sanngirni sé gætt þá eru fregnir easyJet glænýjar og markaðsmenn Icelandair eiga væntanlega eftir að leggja mat á andstæðinginn og hvort og hvernig beri að bregðast við. Fararheill telur engan vafa á að fargjöld þeirra muni fari lækkandi fljótlega enda það eðli samkeppni í heiminum. Frábært!