Tíðindi

Mun færri lepja bjórinn á Oktoberfest

  27/09/2012No Comments

Ef marka má bjórsölutölur fyrstu daga hinnar frægu Oktoberfest í Munchen í Þýskalandi hefur sú hátíð þegar toppað. Töluvert færri eru að lepja bjórinn og slafra í sig pylsurnar þetta árið en síðustu þrjú ár sem hafa öll verið metár.

Ein skemmtilegasta hátíð heims, nema fyrir þá sem ekki bragða áfengi, er vafalítið Októberfest. Færri hafa þó látið sjá sig þar þetta árið en síðustu ár.

Þetta eru góðar fréttir fyrir þá sem áhuga hafa að sækja þessa miklu hátíð heim en reyndin hefur verið sú undanfarin ár að erfitt hefur verið að fá gistingu fyrir þann mikla og vaxandi fjölda sem berja vilja dýrðina augum. Að sama skapi hafa gistihúsa- og hóteleigendur ekki hikað við að heimta feitari pening en venjulega fyrir herbergin.

Kannski á verðbólga og almennt slæmt árferði þátt í slakari aðsókn nú en fyrri ár en töluverð verðhækkun hefur orðið á bjórnum sem í boði er. Kostar nú eitt glas af guðaveigunum vart undir 1.300 krónum og oft töluvert meira. Ekki er ýkja langt síðan enginn bjór á hátíðarsvæðinu kostaði ekki krónu yfir þúsund krónum.