Bullandi vandræði eru í uppsiglingu í London. Þrír dagar í Ólympíuleikanna í borginni, tollverðir og starfsfólk á flugvöllum ætlar í dagsverkfall á fimmtudag og nú er útlit fyrir að starfsfólk jarðlesta London leiki sama leikinn.
Það er allavega raunin samkvæmt fjölmiðlum í Bretlandi og er ekki á bætandi enda virka flugvellir illa án starfsfólks og lamist jarðlestakerfið líka er fokið í flest skjól fyrir ferðafólk.
Er ráð fyrir fólk sem er á leið til borgarinnar að gera ráðstafanir vegna þessa og taka frá verulega aukinn tíma vegna tafa á Heathrow, Luton, Gatwick, Southend og Stansted. Sömuleiðis verður líklega að taka leigubíla, strætó eða rútur inn í London ef verkfallið verður að veruleika.
Þá veit enginn ennþá hvernig umferð í London mun ganga nú þegar sérstakar akreinar fyrir Ólympíuleikana eru teknar frá. Gangi það ekki smurt verður umferð í London hrein hörmung og er hún ekki neitt súper fyrir.







