Skipuleggjendur Ólympíuleikanna sem hefjast í London í lok júlí hafa gert ráð fyrir öllum fjandanum og telja sig færa í flestan sjó. Eitt getur þó auðveldlega sett leikana á annan endann án þess að nokkur fái rönd við reist. Breska veðrið.
Ekki hefur farið fram hjá þeim er með fréttum fylgjast að veðurfar á Bretlandseyjum þetta sumarið hefur verið það blautasta síðan áreiðanlegar mælingar hófust árið 1910. Þannig var síðastliðinn júní sá allra blautasti frá því ári og fyrstu tólf dagarnir í júlí benda einnig til að regnmet séu í hættu.
Hefur enda rigning sett strik í reikninginn velflestra viðburða sem haldnir hafa verið sunnarlega í Englandi og nægir þar að nefna Drottningarafmælið, Wimbledon tenniskeppnina og Glastonbury tónlistarhátíðin var einn vatnspollur.
Eru þetta fyrstu Ólympíuleikarnir sem fram fara svo norðarlega á hnettinum síðan árið 1980 þegar leikarnir voru haldnir í Moskvu.
Allar götur síðan hafa leikarnir farið fram í töluvert heitari löndum en Englandi og að mestu vandræðalaust.
Það er því töluverð ástæða fyrir þá Íslendinga sem leið sína leggja til London á næstunni að pakka eins og einni regnhlíf með.







